Afhverju JólaJobbi
JólaJobbi varð til vegna þess að sá sem stofnaði þessa síðu hefur bilaðan áhuga á jólunum og öllu sem að þeim fylgir. Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á jólunum og skreytingunum þá sérstaklega. Það er fátt skemmtilegra en að skreyta húsið að utan.
Jólaljósin, skrautið, jólatréð, snjórinn, undirbúningurinn og allt brasið sem þessu fylgir er það sem gerir þetta þess virði.
Með JólaJobba langar mig að deila þessum áhuga með ykkur. Hérna inni getið þið fundið viðburði og afþreyingu til þess að gera þenna besta tíma ársins aðeins betri.