← Til baka á Jólasveina
Gáttaþefur
Ellefti var Gáttaþefur
aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.
Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.
- Jóhannes úr Kötlum